Jón Gnarr ekki á skipuriti

Jón Gnarr er horfinn úr yfirstjórn 365.
Jón Gnarr er horfinn úr yfirstjórn 365. mbl.is/Ómar Óskarsson

Á nýju skipuriti, sem forstjóri 365 hefur kynnt fyrir starfsfólki fyrirtækisins, kemur fram að Jón Gnarr er ekki lengur í hópi helstu stjórnenda fyrirtækisins.

Í hans stað hefur Hrefna Lind Heimisdóttir tekið við sem yfirmaður dagskrárgerðar hjá fyrirtækinu, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Jón tók við sem framkvæmdastjóri dagskrársviðs fyrirtækisins um miðjan október í fyrra en Hrefna Lind bar titilinn ritstjóri dagskrársviðs. Segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri 365 í blaðinu, að ákveðið hefði verið að Jón myndi einbeita sér fram á haustið að gerð grínþáttaraðar sem ber heitið Borgarstjórinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert