Þíðviðri og hlýindi, en ekki mikil sól

Búast má við ágætisveðri í dag að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands, sem segir enn einn góðan sumardag í vændum með þíðviðri og hlýindum, þó að líklega muni ekki sjást mikið til sólar.

Úrkoma verður með minna móti og er það helst að einhverjar skúrir geti orðið síðdegis og að súldarloft  kunni að vera við sjávarsíðuna.

Búist er við að helgarveðrið verði í svipuðum dúr, þó að búast megi við eitthvað meiri rigningu í sumum landshlutum. Þurrt verður þó að kalla sunnanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert