Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International er meðal þeirra sem taka þátt í Druslugöngunni sem haldin er á morgun.
Ungliðahreyfingin vill í ár vekja athygli á skelfilegum veruleika mexíkóskra kvenna sem lenda í klóm opinberra öryggissveita sem beita þær kerfisbundnu kynferðisofbeldi til þess að knýja fram játningar við þeim ákærum sem þeir saka þær um. „Með játningar kvennanna undir höndum geta meðlimir öryggissveitanna svo státað sig af því að verða ágengt í baráttunni gegn hömlulausri og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu,“ segir í fréttatilkynningu.
Ný rannsókn Amnesty International hafi leitt í ljós að af þeim 100 konum sem samtökin ræddu við þá hafi 97 orðið fyrir líkamlegu ofbeldi, 72 fyrir kynferðisofbeldi og 33 hafi verið nauðgað við yfirheyrslur eða í varðhaldi.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International mun standa fyrir undirskriftasöfnun fyrir ákall til mexíkóskra stjórnvalda, sem fram fer á Austurvelli í kjölfar göngunnar og eru allir hvattir til að skrifa undir ákall samtakanna til mexíkóskra stjórnvalda um að grípa til tafarlausra aðgerða til að takast á við og fyrirbyggja pyndingar eða aðra illa meðferð af hálfu öryggissveita, sérstaklega hvað varðar kerfisbundið kynferðisofbeldi gagnvart konum.