Tveir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans í dag eftir umferðarslys. Annars vegar við Stekkjarbakka í Reykjavík og hins vegar torfæruslys í Jósepsdal.
Hvorugir þeirra eru í lífshættu skv. upplýsingum frá lækni á vakt á Landspítala. Eru þeir báðir þó enn til rannsókna á spítalanum.
Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan barnsins sem lenti í umferðarslysi í Víðidal í dag.
Frétt mbl.is: Sex ára barn lenti í reiðhjólaslysi