Tefldu til minningar um Jorge

Hjörvar Steinn Grétarsson með sigurlaunin, málverk eftir Jorge Fonseca, ásamt …
Hjörvar Steinn Grétarsson með sigurlaunin, málverk eftir Jorge Fonseca, ásamt Ingibjörgu Eddu Birgisdóttur skákkonu og Róbert Lagerman, varaforseta Hróksins. Ljósmynd/ Hrókurinn

Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari sigraði á Minningarmóti Jorge Fonseca 2016, hlaut 7,5 vinning af 8 mögulegum. Í öðru sæti varð alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson með 7 vinninga og bronsið hreppti stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skákfélaginu Hróknum sem stóð fyrir mótinu. Keppendur voru alls 27 talsins. 

„Jorge Fonseca fæddist 1976 og lést á síðasta ári, aðeins 39 ára gamall. Hann ólst upp í Salamanca á Spáni og flutti á unglingsaldri til Madrid. Jorge menntaði sig á Spáni og í Belgíu og var stærðfræðingur að mennt. Hann bjó um árabil á Íslandi og var virkur í skáklífinu hér og meðal helstu meistara í kotru.

Minningarmótið fór fram við afar góðar aðstæður í Pakkhúsi Hróksins við Reykjavíkurhöfn. Þar er miðstöð fatasöfnunar Hróksins í þágu barna, ungmenna og heimilislausra á Grænlandi, og hefur mikið magn af vönduðum og góðum fatnaði verið sent þangað á sl. tveimur árum.

Hjörvar Steinn fékk í sigurlaun málverk eftir hinn fjölhæfa listamann Guðjón Kristinsson frá Dröngum, Jón Viktor fékk inneignarbréf hjá Flugfélagi Íslands og Helgi Grétarsson kassa af Egils Gulli. Helstu bakhjarlar Minningarmóts Jorge Fonseca voru Ölgerðin, Flugfélag Íslands og Ísspor.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert