Umferðarslys varð við Ölfusborgir þegar fólksbíll og jeppi skullu saman.
Ökumaður fólksbílsins var fluttur til Reykjavíkur. Ekki liggja fyrir upplýsingar um ástand hans, en hann var með meðvitund. Fólkið í jeppanum er talið lítið eða ómeitt.
Veginum milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis hefur verið lokað vegna slyssins en samkvæmt lögreglu er umferð beint um Eyrarbakkaveg og Þrengsli.
Uppfært 21:23
Búið er að opna fyrir umferð um Suðurlandsveg.