Lið Crossfit XY lokið keppni

Svanhildur, Hjördís, Sigurður og Sólveig úr liði Crossfit XY.
Svanhildur, Hjördís, Sigurður og Sólveig úr liði Crossfit XY. Skjáskot/Facebook Crossfit XY

Lið Crossfit XY hefur lokið keppni á heimsleikunum í crossfit. Nú síðdegis keppti liðið í síðustu þraut sinni og hafnaði í 27. sæti í henni.

Liðið lýkur því keppni í 34. sæti leikanna, en 10 efstu liðin komast áfram í úrslitakeppnina.

Danska liðið Crossfit Nordvest, sem tveir Íslendingar keppa með, var nálægt því að komast í úrslit en hafnaði í 12. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert