Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá fyrirtækinu Mjólku um að fundist hafi í gæðaeftirliti hjá fyrirtækinu örverumengun í skyrtertum. Brugðist var hratt við þeirri vitneskju og hafa terturnar verið innkallaðar úr öllum verslunum, segir í frétt frá Matvælastofnun. Um er að ræða aðeins einn framleiðsludag og tvær tegundir. Send hefur verið út fréttatilkynning í samráði við Matvælastofnun.
Vörumerki: Mjólka
Vöruheiti: Mangó- og ástaraldinskyrterta
Strikanúmer: 5694310382038
Nettómagn: 600 gr.
Framleiðandi: Ms Akureyri
Framleiðsluland: Ísland.
Framleiðsludagur: 18 07 2016
Best fyrir: 13 08 2016
Dreifing: Vogabær ehf til verslana um land allt.
Vörumerki: Mjólka
Vöruheiti: Hindberjaskyrterta
Strikanúmer: 5694310382014
Nettómagn: 600 gr.
Framleiðandi: Ms Akureyri
Framleiðsluland: Ísland.
Framleiðsludagur: 18 07 2016
Best fyrir: 13 08 2016
Dreifing: Vogabær ehf til verslana um land allt.
Innköllunin á einungis við þessa tilteknu framleiðslulotu og eru aðrar framleiðslueiningar í lagi. Neytendur sem hafa keypt vöruna geta fargað henni eða skilað henni í þá verslun þar sem hún var keypt eða til fyrirtækisins