Lítill hópur ökumanna er í mikilli hættu

Þeir sem eru með eftirvagna eins og hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna …
Þeir sem eru með eftirvagna eins og hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og kerrur þurfa að fara hægar, þ.e. ekki meira en 80 km/klst. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þótt öryggisbeltin hafi fyrir löngu sannað ágæti sitt og flestir ökumenn noti þau er sá litli hópur ökumanna sem ekki notar öryggisbelti hlutfallslega sá vegfarendahópur sem er í mestri lífshættu. Þetta sýna slysatölur undanfarinna ára.

Einn laus einstaklingur í bíl stofnar ekki bara eigin lífi í hættu heldur einnig lífi þeirra sem eru með honum í bílnum og eru jafnvel sjálfir spenntir í öryggisbelti, segir í frétt frá Samgöngustofu um málið. Við árekstur eða bílveltu kastast sá sem er laus til í bílnum og höggþunginn getur orðið margföld þyngd viðkomandi. Sem dæmi má nefna að ef maður sem er 75 kg að þyngd lendir í árekstri á 70 km hraða án bílbelta verður höggþungi hans u.þ.b. 6 tonn. Meðalþyngd karlkyns afríkufíls er á bilinu 4 til 6 tonn.

Auk þess að nota öryggisbelti eru ökumenn og farþegar hvattir til að ganga tryggilega frá farangri þannig að ekki sé hætta á að hann kastist til og valdi líkamstjóni við árekstur.

Tryggingafélögin eiga endurkröfurétt á ökumann

Um það bil 20% allra banaslysa í umferðinni eru af völdum þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis og eru þá ekki meðtaldir aðrir vímugjafar. Oft er magn áfengis í blóði ekki mikið en afleiðingarnar hins vegar mjög alvarlegar.

Í  flestum tilfellum eiga tryggingafélög endurkröfurétt á ökumann sem valdur er að slysi vegna ölvunar og ef ölvaður ökumaður verður valdur að dauða einhvers er venjan sú að viðkomandi hlýtur dóm fyrir manndráp.

„Það er mikilvægt að vinir og aðstandendur ökumanns sem hyggst aka undir áhrifum áfengis eða vímuefna reyni að koma í veg fyrir það,“ segir í frétt Samgöngustofu. „Ef það tekst ekki með góðum ráðum skal hringja í 112 og koma með því í veg fyrir að viðkomandi verði valdur að alvarlegu slysi. Það vandamál sem hugsanlega kann að skapast af því að hringt er í lögreglu er lítilvægt borið saman við mögulegar afleiðingar ölvunaraksturs.“

Áfengi er lengi að fara úr líkamanum og í sumum tilfellum getur þurft að bíða í 14 – 18 klukkustundir áður en áfengi er farið úr blóðinu. Ekki skal aka af stað ef ökumaður er mögulega enn undir áhrifum áfengis.

„Það eykur þægindi, líðan og öryggi allra vegfarenda ef þátttakendur í umferðinni halda jöfnum hraða og þar séu engar öfgar hvort sem það er of hægur eða of hraður akstur,“ segir í fréttinni. Þeir sem eru með eftirvagna eins og hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og kerrur þurfa að fara hægar þ.e. ekki meira en 80 km/klst. og eru hvattir til að haga akstri þannig að auðvelt og öruggt sé að fara fram úr. Við framúrakstur skal þess gætt að það sé góð yfirsýn yfir umferð sem kemur á móti og að ekki sé verið að fara yfir heila óbrotna línu.

„Höfum þolinmæðina með í farteskinu. Njótum stundarinnar og þess að koma heil heim,“ segir í frétt frá Samgöngustofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert