Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bíl sem var á akstri í íbúðarhverfi við Kjarnabraut í Reykjanesbæ með því að keyra inn í hlið hans.
Ökumaðurinn hafði ekki orðið við tilmælum lögreglunnar um að stöðva bifreið sína, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni, en þetta gerðist rétt fyrir hádegi.
Hámarkshraði á Kjarnabraut er 30 km á klukkustund.
Barn var í farþegasæti bílsins, samkvæmt upplýsingum frá vitnum sem lögregla talaði við, að því er RÚV greindi frá.
Lögreglan vildi í samtali við mbl.is ekki staðfesta hvort barn hefði verið í farþegasætinu en sagði að greint yrði betur frá atvikinu síðar í dag.