Sáu 580 seli

Selatalningin mikla tekur aðeins til Vatnsness og Heggstaðarness.
Selatalningin mikla tekur aðeins til Vatnsness og Heggstaðarness. mbl.is/Jón Sigurðsson

Selatalningin mikla fór fram í tíunda skipti 21. júlí.  Markmið talningarinnar er að fylgjast með fjölda og staðsetningu sela á um 100 km strandlengju Vatnsness og Heggstaðarness á Norðurlandi vestra. Þar að auki er selatalningin mikla frábært tækifæri fyrir almenning til þess að fræðast um selarannsóknir þar sem þátttakendur aðstoða við að safna gögnum og upplifa vísindalega vettvangsvinnu.

„Selasetur Íslands vill þakka öllum þeim 57 innlendu og erlendu sjálfboðaliðum sem tóku þátt í selatalningunni miklu þetta árið. Sjálfboðaliðar eru mikilvægasti þáttur þessarar rannsóknar. Þeirra hjálp gerir það mögulegt að safna gögnum á stóru svæði á þeim stutta tíma meðan fjara varir og flestir selir liggja á landi,“ segir í fréttatilkynningu. 

Þau 10 ár sem selatalningin mikla hefur farið fram hafa sést að meðaltali 760 selir hvert sinn. Árin 2008 og 2009 sáust flestir selir eða yfir 1.000 selir bæði árin en árið 2012 sáust aðeins 422 selir. Í ár sáust alls 580 selir sem er meira en síðustu tvö ár, en þó minna en árlegt meðaltal hefur gefið til kynna.

 Þessar tölur eiga aðeins við um fjölda sela á Vatnsnesi og Heggstaðarnesi á þeim tíma sem selatalningin mikla fer fram. Þrátt fyrir að fækkun virðist eiga sér stað eru ýmsir þættir sem geta haft áhrif á fjölda þeirra sela sem sjást hvert sinn, segir í fréttatilkynningu. Veður hefur mikil áhrif en líkt og við mennirnir kjósa selir helst að liggja á þurru í vindlitlu, heitu og sólríku veðri. Í ár var þokukennt, létt úrkoma, um 9 gráðu hiti og nokkur vindur en í slíkum aðstæðum getur verið ákjósanlegra fyrir suma seli að svamla um í sjónum frekar en að liggja á landi. 

Selatalningin mikla tekur aðeins til Vatnsness og Heggstaðarness. Selasetur Íslands stendur nú fyrir stofnstærðarmati landsela á Íslandi sem er framkvæmd með því að telja seli á allri strandlengju Íslands úr flugvél. Síðasta skiptið sem slík talning fór fram var árið 2011 þar sem stofnstærð landsela var metin um 11-12.000 dýr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert