Spítalinn myndi „rústa“ heilbrigðiskerfinu

Kári Stefánsson forstjóri ÍE.
Kári Stefánsson forstjóri ÍE. mbl.is/Golli

„Útlendingaspítalinn myndi því rústa því sem eftir er af íslensku heilbrigðiskerfi og gera endurreisn þess margfalt erfiðari en ella,“ skrifar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í pistli sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Þar gagnrýnir hann áform félagsins MCPB og dr. Pedro Brugada, eins fremsta hjartalæknis heims, um að reisa 30 þúsund fermetra einkaspítala í Mosfellsbæ, sem ætlað er að þjónusta erlenda sjúklinga. „Lífi og limum landsmanna steðjar því hætta af Brugada og hugmyndum hans um það hvernig hann geti gert sér fé úr heilbrigðisþjónustu á Íslandi,“ skrifar Kári.

Kári segist vita fyrir víst að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðismálaráðherra sé mjög mótfallinn hugmyndinni og hvetur hann til að sýna „leiftrandi festu“ við koma í veg fyrir að henni verði hrint í framkvæmd. „Ég vil benda honum á að Þegar ísbirnir ganga á land og lífi okkar og limum steðjar hætta af þeim leyfum við okkur að skjóta þá. Nú er ég ekki að leggja það til að við gerum hið sama við Brugada heldur að við förum að mannúðlegri tillögu Jóns Gnarr um birnina og svæfum hann og flytjum upp á Grænlandsjökul.“

Bakhjarlarnir komist upp með meira hér en annars staðar

Kári segir erfitt að skilja „þau undur og stórmerki að mönnum detti í hug að reisa 30.000 fermetra sjúkrahús í Mosfellsbæ til þess að þjónusta útlendinga án þess að vita hvers vegna.“ Það sé ekki vegna þess að það sé til staðar á Íslandi sérþekking eða óvanaleg geta á því sviði sem sjúkrahúsinu er ætlað að starfa á, vegna þess að forsvarsmenn þess séu búnir að segja að allt slíkt muni koma að utan.

Þá sé það ekki vegna þess að Ísland sé staðsett nálægt þeim sjúklingum sem sjúkrahúsinu sé ætlað að sinna. Það yrði að fljúga þeim til og frá landinu. „Það sem meira er þá yrði að öllum líkindum að gera slíkt hið sama við sérfræðingana sem eiga að bera uppi læknisfræðina á staðnum.“

„Það er hins vegar athyglisvert að meðal fjárhagslegra bakhjarla hugmyndarinnar um útlendingasjúkrahús í Mosfellsbæ eru aðilar sem hafa fjárfest í heilbrigðisstofnunum í þriðja heiminum. Það kæmi mér því ekki á óvart að þeir vildu reisa sjúkrahús á Íslandi vegna þess að þeir hefðu náð sér í ástæður til þess að ætla að hér á landi þyrftu menn ekki að uppfylla eins stíf skilyrði til þess að fá að reka sjúkrahús eins og annars staðar í Evrópu; þeir kæmust upp með meira hér en annars staðar.

Það ber líka að hafa í huga að þótt okkur sé sagt að sjúkrahúsinu sé fyrst og fremst ætlað að þjóna útlendingum þá hefur læknisfræðitúrismi reynst erfiður business og því ekki bara líklegt heldur meira en víst að það færi hægt og hægt að draga til sín fé frá heilbrigðiskerfi íslensks almennings og leggja af mörkum til þess að búa til stéttaskiptingu í heilbrigðisþjónustu í landinu sem við erum flest sammála um að sé með öllu óþolandi. Það sem alvarlegast er þó við hugmyndina um útlendingaspítalann er að honum er ætlað að ráða þúsund manns til starfa á sama tíma og okkur reynist erfitt að manna þær heilbrigðisstofnanir sem þjónusta landsmenn.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert