Umferðartafir á Vesturlandsvegi

Búast má við smávægilegum umferðartöfum frá Melahverfi og norður fyrir …
Búast má við smávægilegum umferðartöfum frá Melahverfi og norður fyrir Leirá. Mynd/Lögreglan á Vesturlandi

Búast má við smávægilegum umferðartöfum á Vesturlandsvegi í dag frá Melahverfi og norður fyrir Leirá í Hvalfjarðarsveit vegna framkvæmda. Greint er frá þessu á Facebook-síðu lögreglunnar á Vesturlandi.

Umferðinni verður stýrt í gegnum athafnasvæðið en vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát á leið sinni um vinnusvæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert