Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins á Suðurlandi eru nú að koma konu til aðstoðar sem fótbrotnaði á Vondugiljaaurum við Landmannalaugar. Hálendisvakt björgunarsveitanna í Landmannalaugum er komin að konunni og er beðið eftir liðsauka þar sem um böruburð talsverða vegalengd gæti verið að ræða.
Á sama tíma var björgunarsveit á ferð á Sprengisandi fengin til að sinna fyrstu viðbrögðum í bílveltu sunnan við Aldeyjarfoss í Bárðardal.