Býður leiðsögn um fornleifarnar

Könnunarskurðir við Árbæ.
Könnunarskurðir við Árbæ. Ljósmynd/ Árbæjarsafn

Í sumar hefur farið fram fornleifarannsókn á Árbæjarsafni og voru fimm könnunarskurðir grafnir á hinu gamla bæjarstæði Árbæjar. Rannsóknin leiddi meðal annars í ljós tvö mannvirki sem voru byggð fyrir árið 1226 og annað þeirra gæti verið enn eldra, jafnvel frá landnámstíð.

Í tilkynningu frá safninu segir að þessar fyrstu niðurstöður séu afar merkilegar og bæti við þekkingu um sögu Reykjavíkur.

„Elstu rituðu heimildir um búsetu í Árbæ eru frá miðri 15. öld en fornleifafundurinn hefur bætt nokkrum öldum við þá sögu og er ljóst að fornar rætur Árbæjar liggja enn dýpra en áður var þekkt.

Sólrún Inga Traustadóttir fornleifafræðingur verður með leiðsögn á Árbæjarsafni fimmtudaginn 28. júlí kl. 14.00 og kl. 16.00. Þar fá gestir innsýn í þessa nýju fornleifarannsókn á bæjarstæði Árbæjar.“

Leiðsögnin fer fram á íslensku og frítt er inn meðan á leiðsögn stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert