Eigandi Strawberries ákærður

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu afturkallaði á sínum tíma starfsleyfi staðarins þar …
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu afturkallaði á sínum tíma starfsleyfi staðarins þar sem grunur lék á um að þar færu fram nektarsýningar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fyrrverandi eigandi Strawberries hefur verið ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þetta kemur fram á vef RÚV. Að því er fram kemur í ákærunni var velta rekstrarfélags kampavínsklúbbsins vantalin um tæplega 231 milljón króna árin 2010 til 2013. Þá leikur grunur á um að eigandinn hafi vantalið eigin tekjur á sama tímabili.

Er talið að viðskiptavinir hafi lagt peninga beint inn á bankareikning eigandans.

Í frétt RÚV kemur fram að þess sé krafist að ýmis verðmæti verði gerð upptæk, s.s. bankainnistæður, þrjár milljónir króna í reiðufé, fasteignir, skemmtibátur, farartæki og skart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert