Í kvöld stefnir Vegagerðin að því að malbika tvö hringtorg og vegkafla milli hringtorga á Grindavíkurvegi við mislæg gatnamót við Reykjanesbraut. Áætlað er að vinna standi yfir frá kl. 19.30 til kl. 5.00 en vinnusvæðið verður lokað á meðan. Lokanir og hjáleiðir verða merktar.
Á morgun er stefnt að því að fræsa og malbika Reykjanesbraut til vesturs.
„Um er að ræða 1,1 km kafla á innri akrein á milli gatnamóta við Vatnsleysuströnd og gatnamóta við Voga. Akreinin verður lokuð meðan á framkvæmdum stendur. Ytri akrein verður að sjálfsögðu opin.
Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni en vinna mun standa yfir frá kl. 6.00 til kl. 16.00.