Myndi sprengja ríkisstjórnina

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokkins.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokkins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins, um að ekki sé víst að þingkosningar fari fram í haust séu til þess fallin að koma í veg fyrir þá vinnu sem er fram undan í þinginu og setja þar allt í upplausn.

„Nýjasta útspil formanns flokksins er að mínu mati til þess eins fallið að koma í veg fyrir þá mikilvægu vinnu sem fram undan er í þinginu og setja þar allt í upplausn. Slíkt myndi einnig sprengja ríkisstjórnina og þar með færu mörg mál í súginn,“ skrifar Höskuldur á Facebook-síðu sína.

Höskuldur segist líta svo á að ekki komi annað til greina en að standa við samkomulag Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um að kosningar fari fram í haust.

„Á meðan nákvæm dagsetning kjördags liggur ekki fyrir mun áfram ríkja óvissa um það hvort flokkarnir eigi að halda flokksþing og raða fólki á lista þó að flestir séu vel á veg komnir með þá vinnu. Það er þó ekki ástæða til að efast um að næstu þingkosningar fari fram í vetrarbyrjun þótt enn sé óljóst með nákvæma dagsetningu,“ bætir hann við.

Hér má sjá færslu Höskuldar í heild sinni:

„Í kjölfar bréfs formanns Framsóknarflokksins til félagsmanna hafa á ný kviknað efasemdir um það hvort kosningar verði haldnar í haust eða ekki. Í kjölfar Panamaskjalanna þar sem upplýst var um spillingu, leynd, skattsvik fjölmargra einstaklinga, sagði þáverandi forsætisráðherra af sér. Í kjölfarið samþykkti þingflokkur Framsóknarflokksins það skilyrði Sjálfstæðismanna að kosningar yrðu haldnar í haust gegn því að Sjálfstæðisflokkurinn féllist á að Framsóknarflokkurinn skipaði áfram forsætisráðherra úr sínum röðum. Á það féllst Sjálfstæðisflokkurinn og Sigurður Ingi Jóhannsson tók við af formanni flokksins. Þetta skilyrði setti þingflokkur framsóknarmanna ekki síst til að tryggja að unnt væri að halda áfram vinnu við og klára mikilvæg mál á borð við húsnæðisfrumvörp, afnám hafta, mikilvægar samgöngubætur auk fleiri mála sem listuð voru upp í samkomulaginu.

Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur unnið í samræmi við þetta samkomulag þrátt fyrir að mér og mörgum finnist það súrt í broti að ekki verði hægt að ljúka ýmsum öðrum málum sem við teljum einnig mikilvæg. En ég lít svo á að ekki komi annað til greina en að standa við það samkomulag sem gert var. Ég er ekki einn um þá skoðun í þingflokknum – og bendi m.a. á orð Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra, sem sagði í tilefni þeirrar atburðarásar sem formaðurinn hefur hrundið af stað, að hann væri „vanur því að standa við orð sín“. Ég dreg þá ályktun að nýjasta atburðarásin sé forsætisráðherra mjög á móti skapi. Nýjasta útspil formanns flokksins er að mínu mati til þess eins fallið að koma í veg fyrir þá mikilvægu vinnu sem fram undan er í þinginu og setja þar allt í upplausn. Slíkt myndi einnig sprengja ríkisstjórnina og þar með færu mörg mál í súginn.

Á meðan nákvæm dagsetning kjördags liggur ekki fyrir mun áfram ríkja óvissa um það hvort flokkarnir eigi að halda flokksþing og raða fólki á lista þó að flestir séu vel á veg komnir með þá vinnu. Það er þó ekki ástæða til að efast um að næstu þingkosningar fari fram í vetrarbyrjun þótt enn sé óljóst með nákvæma dagsetningu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert