Sverja af sér tengsl við Burbanks Capital

Terry Jester, forstjóri bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Material.
Terry Jester, forstjóri bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Material. mbl.is/Eggert

Forsvarsmenn Silicor Materials, sem hyggst reisa sólarkísilver á Grundartanga, segja að félagið hafi engin tengsl við hollenska félagið Burbanks Capital.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Davíð Stefánssyni, fulltrúa Silicor á Íslandi.

Eins og kunnugt er hyggst hollenska félagið fjármagna nýtt einkasjúkrahús í Mosfellsbæ.

Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að hollenska félagið hefði árið 2014 undirritað samning við Silicor Materials í tengslum við uppbyggingu sólarkísilvers á Grundartanga í Hvalfirði. Var vísað í heimasíðu Burbanks Capital.

Forsvarsmenn Silicor segjast þvert á móti enga samninga hafa gert við hollenska félagið.

Að baki uppbyggingu sólarkísilversins standi margir öflugir fjárfestar, bæði íslenskir og erlendir, en Burbanks Capital sé ekki í þeim hópi.

Fréttatilkynning Silicor Materials:

Að gefnu tilnefni vill Silicor Materials koma því á framfæri að fyrirtækið hefur engin tengsl við Burbanks Capital. Að baki uppbyggingu sólarkísilvers Silicor á Grundartanga standa margir öflugir fjárfestar, bæði íslenskir og erlendir, en Burbanks Capital er ekki í þeim hópi.

Íslenskir fjölmiðlar hafa að undanförnu fjallað um áform Burbanks Capital um uppbyggingu og rekstur einkarekins sjúkrahúss í Mosfellsbæ. Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær, þar sem fjallað var um fyrirtækið, kom fram að á heimasíðu Burbanks Capital segi að fyrirtækið hafi samið við Silicor Materials í tengslum við uppbyggingu sólarkísilvers á Grundartanga í Hvalfirði. Silicor hefur enga samninga gert við Burbanks Capital.

Silicor Materials er bandarískt fyrirtæki sem nú undirbýr uppbyggingu sólarkísilvers á Grundartanga í Hvalfirði með aðkomu íslenskra og alþjóðlegra fjárfesta. Þar verður framleiddur sólarkísill með nýrri og umhverfisvænni aðferð sem nýttur verður í sólarhlöð sem virkja rafmagn úr sólarorku. Allar nánari upplýsingar um sólarkísilver Silicor er að finna á vefsíðunni www.silicor.is.

Grundartanga, þar sem sólarkísilverið mun rísa.
Grundartanga, þar sem sólarkísilverið mun rísa. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert