73% heimtur á jafnréttisáætlunum

Morgunblaðið/Kristinn

Jafnréttisstofa hefur tekið á móti og samþykkt jafnréttisáætlanir hjá 54 af 74 sveitarfélögum landsins. Þetta eru heimtur upp á 73%, sem telst mjög góður árangur að  því er fram kemur í frétt á vef stofnunarinnar.

Kallað var eftir jafnréttisáætlunum frá öllum sveitarfélögum í október 2015. Jafnréttisstofa fór yfir allar innsendar jafnréttisáætlanir og gerði athugasemdir við þær eða kom með ábendingar eftir því sem átti við.

Verkefninu lauk af hálfu Jafnréttisstofu mánaðamótin júní/júlí, en þá var ítrekað búið að hafa samband við þau sveitarfélög sem ekki voru búin að senda inn jafnréttisáætlanir til samþykktar. Í frétt jafnréttisstofu segir að að sjálfsögðu verði enn á móti jafnréttisáætlunum frá þeim sem ekki hafa skilað áætlun til samþykktar ennþá.

Sex stærstu sveitarfélögin hafa öll skilað jafnréttisáætlun. Minnstar heimtur, eða 59,5 prósent, eru í sveitarfélögum þar sem íbúar eru undir 1.000 talsins og segir Jafnréttisstofa að í framhaldi af samskiptum við minnstu sveitarfélögin, sem bæði hafi fáa íbúa og mjög litla starfsemi, standi til að skoða kröfur til þeirra sérstaklega.

„Í sumum þessara sveitarfélaga  er t.d. aðeins starfsmaður í hálfu starfi og þjónustusamningar við nærliggjandi sveitarfélög um nánast alla þjónustu og starfsemi. Þrátt fyrir að í jafnréttislögum sé ekki gerður neinn greinarmunur á sveitarfélögum eftir stærð, þá telur Jafnréttisstofa að það verði að túlka kröfur laganna þannig að þær taki tillit til raunverulegrar stöðu,“ segir í fréttinni.

„Jafnréttisstofa leggur til að nú, þegar haldið er upp á 40 ára afmæli jafnréttislaga, þá væri vert að endurskoða ákvæði um jafnréttisáætlanir í lögunum. Ráðherra hefur heimild til að setja reglugerð um nánari framkvæmd laganna, sbr. 33. gr. Sú heimild hefur ekki verið nýtt en full ástæða væri til þess að útfæra nánar þær kröfur sem gerðar eru í 12. gr. laganna til sveitarfélaganna.“  

Seinna á árinu mun Jafnréttisstofa óska eftir skýrslum frá sveitarfélögunum um stöðu og þróun jafnréttismála. Jafnframt mun Jafnréttisstofa verða í sambandi við minnstu sveitarfélögin í haust eins og um var samið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert