Ístak er að breyta sínum gömlu höfuðstöðvum við Engjateig í sendiráð fyrir Bandaríkin. Unnið er að undirbúningi og framkvæmdir hefjast í haust.
Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, segir að þetta sé mikið verk, líklega stærsta verkefni Ístaks hér á landi í ár.
Framkvæmdir miða meðal annars að því að tryggja öryggi sendiráðsins og starfsmanna þess.