Elliði gefur ekki kost á sér

Elliði Vignisson mun ekki bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Elliði Vignisson mun ekki bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Árni Sæberg

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hyggst ekki gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi alþingiskosninga. 

Í fréttatilkynningu kveður Elliði marga hafa komið að máli við sig og hvatt sig til þátttöku og hann hafi íhugað stöðuna vandlega.

„Það er í senn mannbætandi, þroskandi og gefandi að hafa fundið fyrir því trausti sem mér hefur verið sýnt til þess að gegna þeirri stöðu sem ég geri í dag.​ Í rúmlega 10 ár hef ég lagt mig allan fram um að vinna Vestmannaeyjum gagn og ég tek alvarlega því umboði sem mér hefur verið fengið og er stoltur af árangrinum,“ segir Elliði í tilkynningunni.

„Flestum er ljóst að ákvörðun um flýta þingkosningum takmarkar verulega möguleika sveitarstjórnarmanna, sem annars hefðu ef til vill haft fullan hug, á framboði til þingkosninga.  Í dag er kjörtímabil sveitarstjórna rétt liðlega hálfnað og verkefnastaðan þétt. Meðal stærstu verkefna okkar í bæjarstjórn Vestmannaeyja er stækkun á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum, þróun þjónustuíbúða fyrir aldraða, bygging íbúða fyrir fatlaða, fasteignaþróun í miðbæ Vestmannaeyja, þróun háskólanáms, efling þekkingarstarfs, nýsmíði Vestmannaeyjaferju, innleiðing á nýju þjónustuneti fyrir barnafjölskyldur og margt fleira. Þessi verkefni skipta svo marga svo miklu og því mikilvægt að vel takist til.

Eftir að hafa vegið og metið stöðuna með mínu nánasta samstarfsfólki, fjölskyldu og stuðningsmönnum hef ég því tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á mér til forystu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi nú síðsumars heldur einbeita mér áfram að því að ljúka þeim verkefnum sem ég er ábyrgur fyrir í Vestmannaeyjum, þar sem hjartað slær. Ég ítreka að ég er afar þakklátur fyrir þann mikla stuðning og velvilja sem ég hef fundið fyrir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert