Hætta á söguleg mistök

Björgunarvesti flóttafólks á ruslahaugum þorpsins Molyvos á Lesbos.
Björgunarvesti flóttafólks á ruslahaugum þorpsins Molyvos á Lesbos. AFP

Þröngsýnir og sjálfhverfir þjóðarhagsmunir mega ekki kasta á glæ frumkvæði Ban Ki-moon þegar kemur að því að leysa flóttamannavandann segir Amnesty International á Íslandi.

Í fréttatilkynningu samtakanna segir að viðræður eigi sér nú stað innan Sameinuðu þjóðanna til að ná sáttum um samábyrgð ríkja á flóttafólki fyrir árið 2018.Aðeins tæp vika sé til stefnu áður en tillagan, sem getur umbylt ástandinu, verður lögð inn fyrir leiðtogafundinn nú í september.

Afgerandi niðurstaða myndi gefa 20 milljónum flóttamanna á heimsvísu nýja von en Amnesty varar við því að hópur ólíklegra samherja, þar á meðal Ástralía, Kína, Egyptaland, Indland, Rússland, Pakistan og Bretland, hætti á að spilla þessari einu tilraun sem er í burðarliðnum á heimsvísu til að koma á raunhæfum aðgerðum vegna flóttamannavandans.

Ríki hætti á að gera söguleg mistök með því að fórna réttindum flóttamanna fyrir sjálfhverfa þjóðarhagsmuni

„Í lok júlí stefna aðildararríki Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á að hittast í New York til að leggja lokahönd á texta samnings í átt að alþjóðlegu samkomulagi um flóttamenn svo hægt sé að takast á við núverandi vanda sem og þá sem kunna að koma upp í framtíðinni. Á komandi dögum hafa ríki lokatækifæri til að breyta afstöðu sinni áður en niðurstöðuskjal viðræðnanna er lagt inn til samþykktar á leiðtogafundi SÞ í september,“ segir í tilkynningu Amnesty þar sem einnig er vitað í Salil Shetty, framkvæmdastjóra samtakanna.

 „Þegar fleiri en 150 þjóðhöfðingjar og fulltrúar stjórnvalda safnast saman hjá SÞ nú í september til að leggja grunn að nýjum alþjóðlegum ramma til að finna lausn á flóttamannavandanum, ættum við að vera á barmi sögulegra framfara. Það sem vofir hins vegar yfir eru hugsanlega skammarleg söguleg mistök, þar sem að nokkur ríki fórna réttindum flóttamanna fyrir eigingjarna þjóðarhagsmuni,“ er haft eftir Shetty.

„Enn er þó tími til þess að forðast hengiflugið. Ásamt milljónum stuðningsmanna okkar um allan heim mun Amnesty International láta leiðtoga okkar vita að mistök verði ekki liðin.“

Írösk börn og mæður í Dibaga flóttamannabúðunum norðan.
Írösk börn og mæður í Dibaga flóttamannabúðunum norðan. AFP

Sameiginleg ábyrgð í hættu

Amnesty segir undirstöðuatriði nýja samningsins vera samábyrgð á heimsvísu – ekkert land ætti að þurfa að gera meira en það sem er sanngjarnt og öll ríki ættu að viðurkenna þá sameiginlegu lögbundnu skyldu um að uppfylla réttindi fólks sem neyðst hefur til að yfirgefa heimili sín vegna stríðs eða ofsókna. Í stað þess að deila ábyrgðinni séu mörg ríki hins vegar að leyfa sér að halda áfram að koma ábyrgðinni yfir á aðra sem sé ekki aðeins skammsýni heldur vinni á endanum gegn sjálfu sér.

Amnesty International hefur lagt til áætlun í fimm liðum sem aðildarríki SÞ gætu stuðst við þegar kemur að því að taka á móti og hýsa flóttamenn á sanngjarnan hátt – út frá vergri þjóðarframleiðslu, atvinnuleysi og öðrum hlutlægum  mælikvörðum.

Segja samtökin að samt sem áður virðist stjórnvöld vera á barmi þess að hafna stefnu leiðtogafundarins um samábyrgð og tína til þess ýmsar ástæður. Jafnvel orðalagið „sameiginleg ábyrgð“ sé í hættu. Samkomulaginu um flóttamenn muni nú verða frestað um tvö ár vegna þess að sum ríki krefjist þess að það samsvari fullkomlega samkomulagi um fólksflutninga (e. migration).

„Allar þessar afsakanir má rekja til skorts á pólitískum vilja; vilja til þess að halda áfram að reisa girðingar og að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist og láta óátalda þá þjáningu sem hægt væri að koma í veg fyrir hjá milljónun manna,“ segir í tilkynningunni þar sem aftur er vitnað í Shetty:

„Tími þess að láta allt ganga sinn vanagang er liðinn. Þegar auðug ríki eru ekki að gera nærri því nóg þegar kemur að því að hýsa og aðstoða flóttamenn, er ljóst að hugmyndin um samábyrgð, sem er undirstöðuatriði alþjóðlega samkomulagsins, er löngu tímabær. Auðug og áhrifamikil ríki verða að hætta að koma með afsakanir og leggja lóð sín á vogarskálarnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert