Innkalla 77 Nissan bifreiðir

Um er að ræða 77 Nissan bifreiðir, árgerðir 2014- 2015, …
Um er að ræða 77 Nissan bifreiðir, árgerðir 2014- 2015, af tegundinni X-Trail. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 77 Nissan bifreiðum árgerð 2014- 2015, af tegundinni X-Trail. Ástæða innköllunarinnar er að komið hefur fram í gæðaeftirliti Nissan galli í ryðvörn á hlerapumpum fyrir afturhlera. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendastofu.

Þar segir að ryð geti myndast á demparahulsu vegna ónógrar ryðvarnar við framleiðslu. Möguleiki er á að hlerapumpa losni frá eða brotni, og þrýstingur falli þannig að hlerapumpa og stuðningur við afturhlera verði óvirkur. Aðeins hefur orðið vart við þennan galla í Japan, en öryggis vegna hefur Nissan ákveðið að kalla einnig inn Evrópubíla.

BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert