Umferðin um Hvalfjarðargöng í júní síðastliðnum var sú mesta í júnímánuði frá því að göngin voru opnuð fyrir umferð þann 11. júlí 1998.
Alls fóru 239.464 ökutæki um göngin í júní sl. og er það 6,08% aukning miðað við sama mánuð 2015.
Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf., segir í Morgunblaðinu í dag, að umferð um göngin hafi aukist mikið það sem af er árinu og hlutfallslega enn meira í öðrum mánuðum en júní. Þannig var umferðaraukningin 27% í maí miðað við sama mánuð 2015. Fyrstu sex mánuði þessa árs er umferðaraukningin 17,3% miðað við sömu mánuði á síðasta ári.