Steinar lagðir á kistur fólks

Íslenskir og bandarískir sérfræðingar unnu verkið í Keflavík á Hegranesi..
Íslenskir og bandarískir sérfræðingar unnu verkið í Keflavík á Hegranesi.. Ljósmynd/Byggðasafn Skagfirðinga

„Við sjáum t.a.m. hvernig grafirnar voru merktar á sínum tíma, það er eitthvað sem við höfum ekki séð áður. Steinar hafa verið lagðir við bæði höfuð- og fótenda grafa á yfirborði. En einnig voru steinar lagðir í grafirnar, ofan á kistur og þá sem í þeim voru.“

Þetta segir Guðný Zoëga, mannabeinafræðingur og deildarstjóri fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga, í umfjöllun um uppgröft kirkjugarðs við bæinn Keflavík í Hegranesi, en þar eru sérfræðingar búnir að grafa upp alls 43 grafir og nokkuð stæðilega kirkju sem hefur verið stafverkshús með torfveggjum.

Kirkjugarðurinn við Keflavík er hringlaga, 17 metrar í þvermál, og var hann tekinn í notkun skömmu eftir kristnitöku, um árið 1000. Talið er að fólk hafi verið grafið í garðinum fram á fyrstu áratugi 12. aldar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert