Starfsmenn Ístaks vinna við afar sérstakar aðstæður á einu af nyrstu byggðu bólum heims. Þeir vinna að endurnýjun búnaðar í dönsku herstöðinni Station Nord, nyrst á Grænlandi.
Herstöðin er svo norðarlega og afskekkt að hún er að mestu utan fjarskiptasambands, að því er fram kemur í umfjöllun um þessi umsvif Ístaks í Morgunblaðinu í dag.
Danskt systurfélag Ístaks, Per Aarsleff AS, tók að sér endurnýjun eldsneytistanka og lagna í tveimur nyrstu herstöðvum danska hersins, Station Nord og Daneborg sem báðar eru í þjóðgarðinum mikla á austurströnd Grænlands. Þær eru mannaðar af Sirius-hundasleðasveitum hersins og gegna einnig hlutverki í rannsóknum.