Þörf á kafbátaleit frá Keflavík

P-3C Orion sinntu á sínum tíma kafbátaleit frá Keflavíkurflugvelli.
P-3C Orion sinntu á sínum tíma kafbátaleit frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Opna ætti að nýju varnarstöð Bandaríkjamanna í Keflavík og hefja þaðan eftirlit með rússneskum kafbátum í Norður-Atlantshafi.

Þetta er meðal tillagna í nýrri skýrslu Center for Strategic & International Studies (CSIS), alþjóðlegrar rannsóknarstofnunar á sviði öryggismála, í Washington, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag.

Greint er frá skýrslunni á vefsíðu Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Þar segir að samkvæmt skýrslunni geti NATO og samstarfsríki bandalagsins ekki á þessari stundu brugðist með skömmum fyrirvara við stórauknum umsvifum Rússa neðansjávar á stórum hluta Norður-Atlantshafs og Eystrasalts.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert