20 milljónir í pottinum næst

Happdrætti Háskóla Íslands

Dregið var út í happdrætti Háskóla Íslands í dag en hæsti vinningur var 2,5 milljónir króna sem einn heppinn vinningshafi fékk. Sex miðaeigendur unnu eina milljón króna og þar að auki unnu níu einstaklingar 500 þúsund krónur.

Heildarupphæð vinninga í drættinum nú í ágúst var 92 milljónir króna. Stærsti vinningurinn gekk ekki út og verður potturinn því tvöfaldur, eða að upphæð 20 milljónir króna, næst þegar dregið verður út í september. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Helgi Þór Gunnarsson Helgi Þór Gunnarsson: HA?
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert