Tilkynntar tvær nauðganir

mbl.is/Eggert

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tilkynningar um tvær nauðganir í nótt. Var farið með þolendur á neyðarmóttöku Landspítalans í Fossvogi fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Þetta kom fram í útvarpsfréttum Rásar 2 í hádeginu. Er rannsókn lögreglu sögð vera á frumstigi.

Talið er að vel á annað hundrað þúsund manns hafi lagt leið sína í miðborg Reykja­vík­ur í gær og fram á kvöld, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá Höfuðborg­ar­stofu.

Lögreglan segir að aðsókn hafi verið afar jöfn og þétt frá há­degi og í allt kvöld. Þá gekk um­ferð greiðlega frá miðborg­inni strax eft­ir flug­elda­sýn­ing­una.

Mikill erill var hjá lögreglu en alls var 131 mál skráð í dagbók lögreglu frá klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert