Alþýðufylkingin hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem auglýst er eftir frambjóðendum á framboðslista flokksins fyrir þingkosningar í haust. Áhugasamir þurfa að vera á kjörskrá og styðja stefnu flokksins um „félagsvæðingu á fjármálakerfinu og öðrum innviðum samfélagsins“.
Viðkomandi er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd í tölvupósti, althydufylkingin@gmail.com, eða í síma 895-9564. Númerið á Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar.