Beint flug milli Íslands og Japans?

Utanríkisráðherra ásamt japönsku þingmönnunum.
Utanríkisráðherra ásamt japönsku þingmönnunum.

Mikill áhugi er fyrir því að koma á beinu áætlunarflugi milli Íslands og Japans en bæði íslensku millilandaflugfélögin hafa yfir að ráða flugvélum sem gætu flogið leiðina án millilendinga. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra með japönskum þingmönnum sem staddir eru hér á landi.

Tilefni heimsóknarinnar er 60 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Japans, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Vinna við gerð tvísköttunarsamnings, samstarf á sviði auðlinda- og orkumála og áhuginn á gerð loftferðasamnings var meðal þess sem Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra ræddi í dag við hóp japanskra þingmanna sem staddir eru hér á landi,“ segir m.a. í tilkynningunni.

„Á fundinum var einnig rætt um samskipti landanna og samstarf á sviði alþjóðamála, viðskipta og menningar. Þar hafa löndin átt áralangt og gott samstarf og er Japan eitt af helstu viðskiptalöndum Íslands. Gagnkvæmur áhugi þjóðanna á að styrkja þessi samskipti enn frekar var ítrekaður í sérstakri yfirlýsingu sem utanríkisráðherrar landanna undirrituðu árið 2014 og er nú unnið að því. Mikill áhugi er til dæmis fyrir því að koma á beinu áætlunarflugi milli landanna, en bæði íslensku millilandaflugfélögin búa yfir flugvélum sem gætu flogið til Japans án millilendingar.

Utanríkisráðherra fagnaði því á fundinum að viðræður um gerð tvísköttunarsamnings milli Íslands og Japans séu hafnar, en íslensk skattayfirvöld telja brýnt að slíkur samningur komist á sem fyrst. Þá voru eldri hugmyndir um gerð fríverslunarsamnings milli Japans og Íslands ítrekaðar og ræddar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert