Kona á fimmtugsaldri liggur enn á gjörgæslu Landspítalans eftir árekstur fólksbíls og steypubíls á Bakkavegi í Rangárvallarsýslu í gærmorgun. Kona á þrítugsaldri, sem einnig var í bílnum, dvelur enn á bráðamóttöku spítalans.
Konurnar voru fluttar með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi en í gær lá ekki fyrir hvernig slysið bar að.