Rannsaka andlát ungs manns

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar hvort andlát ungs manns um helgina tengist neyslu fentanýls, sem er sterkt lyfseðilsskylt verkjalyf. Maðurinn lést á heimili sínu. Þetta kom fram í fréttum RÚV í hádeginu.

Hann hafði verið á skemmtistað í miðborginni með félaga sínum á laugardagskvöldið en sá missti þar meðvitund (fór í hjartastopp). Lögreglan rannsakar nú hvort það tengist neyslu á sömu efnum.

Frétt RÚV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert