Kvikmyndin Þrestir er meðal þeirra 50 kvikmynda sem tilnefndar eru til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár. Hrútar voru tilnefndir til verðlaunanna í fyrra.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin eru á vegum Evrópsku kvikmyndaakademíunnar (European Film Academy). Á næstu vikum munu rúmlega þrjú þúsund aðilar Evrópsku kvikmyndaakademíunnar greiða atkvæði um val á mynd ársins, leikstjóra, leikara, leikkonu og handritshöfund Evrópu.
Þrestir, kvikmynd í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, var tilnefnd til 10 Edduverðlauna.
Þrestir hafa verið tilnefndir til fjölmargar verðlauna og eins hlotið mörg alþjóðleg verðlaun