Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, var kjörin formaður Vestnorræna ráðsins á ársfundi þess í Grænlandi í gær.
Í fréttatilkynningu kemur fram að ræðu sinni til ráðsins lagði Unnur Brá áherslu á mikilvægi þess að Vestnorræna ráðið héldi áfram að vinna að nánara samstarfi vestnorrænu landanna um málefni norðurslóða, þar á meðal á vettvangi hringborðs norðurslóða og með því að tryggja að umsókn ráðsins um áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu yrði samþykkt.
Hún fagnaði yfirlýsingu utanríkiráðherra landanna þriggja frá því í gær, 22. ágúst, um að kannaðir verði kostir þess að gera þríhliða fríverslunarsamning milli landanna. Yfirlýsing ráðherranna er í samræmi við ályktun Vestnorræna ráðsins frá árinu 2015 og sagði Unnur Brá það ánægjulegt að málið væri loksins komið í skýran farveg hjá stjórnvöldum landanna þriggja.
„Ársfundur samþykkti að hvetja stjórnvöld á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi að vinna sameiginlega að rannsókn um umfang plasts í Norður-Atlantshafi og ekki síst áhrif þess á lífríki hafsins. Einnig var samþykkt að beina því til stjórnvalda landanna þriggja að vinna að greiningu á fýsileika þess að setja á fót vestnorræna eftirskóla, ætluðum 14-17 ára ungmennum frá vestnorrænu löndunum. Loks samþykkti ársfundur að beina því til stjórnvalda landanna þriggja að standa fyrir sameiginlegri ráðstefnu um stöðu vestnorrænu landanna í nýjum landfræðipólitískum veruleika.
Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja. Löndin þrjú skipa sex fulltrúa hvert í Vestnorræna ráðið. Unnur Brá Konráðsdóttir tekur við embættinu af Lars-Emil Johansen, forseta grænlenska Landsþingsins. Auk Unnar Brár skipa Íslandsdeild ráðsins Páll Jóhann Pálsson varaformaður, Oddný G. Harðardóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Páll Valur Björnsson og Þorsteinn Sæmundsson. Formaður ráðsins er kjörinn til eins árs,“ segir í fréttatilkynningu.