2,1% atvinnuleysi í júlí

Atvinnuleysi mældist 2,1% í síðasta mánuði.
Atvinnuleysi mældist 2,1% í síðasta mánuði. mbl.is/Golli

Atvinnuleysi mældist 2,1% í síðasta mánuði. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 205.400 manns á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði í júlí 2016, sem jafngildir 86,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 201.100 starfandi og 4.300 án vinnu og í atvinnuleit.

Hlutfall starfandi af mannfjölda var 84,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,1%.

Samanburður mælinga fyrir júlí 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,9 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.600 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,6 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.600 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,9 prósentustig. Atvinnuleysi hefur ekki mælst jafnlágt í júlímánuði síðan árið 2007 þegar það mældist 1,8%, samkvæmt frétt Hagstofunnar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 2,9%

Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 197.400 í júlí 2016 sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku, sem er 0,3 prósentustigum hærri en hún var í júní.

Fjöldi atvinnulausra í júlí var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.700 sem er aukning um 900 manns frá því í júní.

Hlutfall atvinnulausra jókst því úr 2,5% í júní í 2,9% í júlí. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júlí 2016 var 80,6%, sem er nánast sama hlutfall og í júní.

Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 1,1 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,4 prósentustig og um 0,6 stig síðustu tólf mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert