ASÍ mótmælir úrskurðum kjararáðs

Alþýðusamband Íslands.
Alþýðusamband Íslands. mbl.is/Hjörtur

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega nýlegum úrskurðum kjararáðs þar sem embættismönnum og forstöðumönnum ríkisstofnana eru úrskurðaðar tugprósenta launahækkanir í einu vetfangi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem ASÍ sendi fjölmiðlum í dag en miðstjórn sambandsins kom saman á sínum fyrsta fundi eftir sumarleyfi í dag.

Laun nokkurra nefndarformanna og forstöðumanna ríkisstofnana hækkuðu um tugi prósenta samkvæmt úrskurðum ráðsins. Mest var hækkunin hjá formanni kærunefndar útlendingamála, eða um 48 prósent. 

Frétt mbl.is: Forstöðumenn fá afturvirkar hækkanir

„Niðurstaða kjararáðs gengur þvert á sameiginlega launastefnu sem samið var um á vinnumarkaði og lá til grundvallar vinnu aðila vinnumarkaðar um mótun nýs samningalíkans. Með þegjandi samþykki sínu gefa stjórnvöld launafólki langt nef og grafa undan viðræðum aðila vinnumarkaðarins um nýtt samningamódel sem byggir á stöðugleika og öruggri kaupmáttaraukningu,“ segir í ályktun miðstjórnar ASÍ.

Áréttar miðstjórnin að það komi ekki til greina að tekjuhæstu hópar samfélagsins fái sérstaka meðferð og deili ekki kjörum með almenningi í landinu, um slíkt verði engin sátt. „Okkar félagsmenn munu ekki sætta sig við að skapa jarðveg fyrir stöðugleika og aukna verðmætasköpun með ábyrgum launahækkunum til þess að hátekjuhópar geti á einu bretti fengið hækkanir sem nema mánaðarlaunum margra félaga okkar. “

Þá segir í ályktuninni að úrskurðir kjararáðs séu versta birtingarmynd þess ranglætis sem Íslendingar hafi búið við. 

„Það er löngu tímabært að þeir sem telja sig vera yfirstétt þessa lands geri sér grein fyrir því að nú þurfa þeir eins og aðrir að taka afstöðu til þess hvort þeir vilja byggja hér upp samfélag þar sem jafnræði ríkir í launamálum. Til þess þurfum við hugarfarsbreytingu sem felst í norrænu fyrirmyndinni og tímabært að stjórnvöld horfist í augu við alvarlegar afleiðingar þessara úrskurða,“ segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert