Hraðakstur, víma og leyfislausir ökumenn

mbl.is/Ernir

Lögreglan á Suðurlandi kærði 86 ökumenn fyrir að aka of hratt í umdæminu. Af þeim greiddu 65 sekt sína á staðnum en 21 ljúka máli sínu með greiðslu sektar skv. greiðsluseðli.

Athygli vekur að af þessum 86 ökumönnum eru 63 erlendir ríkisborgarar, segir í dagbók lögreglunnar. Af þeim eru Ítalir flestir eða 14 talsins, 10 eru frá Bandaríkjunum, 6 eru frá Frakklandi, 5 frá Þýskalandi og Spáni.

Einn var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar grunaður um að aka undir áhrifum áfengis.

Tveir voru kærðir fyrir að vera ekki með skráninganúmer á bifreið sinni en nokkuð ber á því að þau vantar og mun lögregla fylgja því sérstaklega eftir á næstu dögum. Ökumaður ber ábyrgð á því að skráningarnúmerið sé til staðar og varðar það 10 þúsund króna sekt ef svo er ekki.

Einn var kærður fyrir að flytja farþega gegn gjaldi án þess að hafa tilskilin réttindi til slíks aksturs. Sá var að aka með farþega í Jökulsárlón á vegum íslensks fyrirtækis en var sjálfur ítalskur með útgefin B réttindi í ökuskírteini.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert