Lömuð eftir slys á Selfossi

Landspítalinn Fossvogi.
Landspítalinn Fossvogi. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Kona féll niður um op við neyðarútgang á svölum á þriðju hæð í skrifstofuhúsnæði við Austurveg á Selfossi á mánudagskvöldið.  Fallið var rúmlega 6 metrar og slasaðist konan alvarlega.  Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirliti, samkvæmt færslu í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.

Samkvæmt RÚV er konan þrítug að aldri. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu konunnar þykir kraftaverk að hún lifði fallið af. Hún höfuðkúpubrotnaði, kinnbeinsbrotnaði og hlaut mjög slæmt hryggbrot. Mænan skaddaðist svo mikið að hún kemur líklega til með að verða lömuð frá brjósti. Hún hefur haldið meðvitund nærri allan tímann síðan slysið varð og getur tjáð sig.

Á þriðju hæðinni eru svalir þar sem er neyðarútgangur eða brunastigi. Op er í svalagólfinu og engin rist eða önnur vörn yfir opinu. Konan féll niður um opið 6,3 metra niður á steypta stétt og mun hafa slegist utan í svalir á leiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert