Árekstur á Akureyri

mbl.is/Þórður

Einn var fluttur á sjúkrahús með minni háttar meiðsl eftir árekstur tveggja bifreiða á Borgarbraut á Akureyri um sexleytið í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri. 

Rólegt var yfir öllu á höfuðborgarsvæðinu en einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um ölvun við akstur. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert