Endurreisn fæðingarorlofskerfisins hafi forgang

Endurreisn fæðingarorlofskerfisins og frekari framþróun þess verður að hafa forgang …
Endurreisn fæðingarorlofskerfisins og frekari framþróun þess verður að hafa forgang að mati ASÍ. mbl.is/Ásdís

ASÍ lýsir sig mótfallið hugmyndum Samtaka atvinnulífsins sem vilji fá tryggingagjald lækkað enn frekar. ASÍ hafnar slíkum hugmyndum þar til Fæðingarorlofssjóður endurheimtir þær skerðingar sem hann varð fyrir árið 2014.

ASÍ segir að SA sæki fast á ríkisstjórnina að fá gjaldið lækkað enn frekar. Bent er á að gjaldið hafi lækkað um 0,5 prósentustig 1. júlí.

„Alþýðusambandið lýsir sig mótfallið slíkum hugmyndum þar til Fæðingarorlofssjóður endurheimtir þær skerðingar sem hann varð fyrir árið 2014 en þá lækkuðu stjórnvöld það hlutfall sem sjóðurinn fékk af tryggingagjaldinu um tæpan helming. Endurreisn fæðingarorlofskerfisins og frekari framþróun þess verður að hafa forgang að mati ASÍ,“ segir í tilkynningu frá sambandinu.

Styður málamiðlun starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum

ASÍ segir ennfremur að þó að það hefði gjarnan viljað hraða breytingum til að styrkja sjóðinn styðji sambandið málamiðlun sem komi fram í tillögum starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum og félagsmálaráðherra áformi að setja fram sem sína tillögu. Þetta eigi bæði við um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til foreldra í fæðingarorlofi, lengingu fæðingarorlofs í 12 mánuði og skiptingu fæðingarorlofsins milli foreldra.

Ennfremur segir, að í skýrslunni sé lagt til að lenging fæðingarorlofsréttar hefjist 1. janúar 2019 og verði komin til fullra framkvæmda 1. janúar 2021.

„Þó að ASÍ hefði viljað sjá lengingu fæðingarorlofsréttar koma mun fyrr til framkvæmda, styður það tillöguna á þeim forsendum að hún feli í sér raunhæfa aðlögun í framkvæmd.

Samkvæmt útreikningum ASÍ eiga tillögur starfshópsins, eins og þær eru lagðar fram í skýrslunni, að rúmast innan þess tryggingagjalds sem Fæðingarorlofssjóður fékk á árunum 2012-2013, þ.e. 1,28% af tryggingagjaldinu, og krefst þess að hækkun þess hafi forgang umfram lækkun tryggingagjaldsins,“ segir ASÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert