Fækkun geldinga fagnaðarefni

Matvælastofnun segir í nýrri úttekt að umskipti hafi átt sér stað á svínabúum landsins á tveimur árum. Meðal annars hafi geldingum fækkað sem sé fagnaðarefni. Eins halaklippingar og stakkaskipti hafa orðið á básahaldi gyltna og bógsárum þeirra fækkað.

Úttekt Matvælastofnunar á gyltubúum í vor leiddi í ljós að básahald gyltna og geldingar grísa eru á undanhaldi og bógsárum á gyltum hefur fækkað og eru nú vægari en áður.

Stofnunin hefur unnið úr niðurstöðum eftirlits sem fram fór í apríl og maí 2016 og gefið út samantekt. Farið var í eftirlit á öll svínabú landsins sem halda gyltur, alls 14 bú. Eftirlitið var framkvæmt af dýralækni í viðkomandi umdæmi sem og sérgreinadýralækni svínasjúkdóma.

„Umskipti hafa átt sér stað milli áranna 2014 og 2016 varðandi geldingar grísa, séu grísir geltir þá er það framkvæmt í samræmi við ákvæði laga og reglna. Fækkun geldinga er fagnaðarefni. Bændur hafa í auknum mæli lagt af geldingar eða tekið upp bólusetningu gegn galtarlykt.

Halaklippingar eru á undanhaldi, það tekur þó tíma að geta lagt af halaklippingar á búum almennt því varnir gegn halabiti eru nátengdar breytingum á aðbúnaði grísanna. Stakkaskipti hafa orðið á básahaldi gyltna, rúmur þriðjungur búa hefur allar gyltur í lausagöngu, rúmur þriðjungur búa er með lausagöngu að hluta og unnið er að afnámi básahalds hjá öllum sem enn nota bása.

Bógsárum hefur fækkað og eru þau einnig vægari en áður. Litlar breytingar hafa orðið á gotstíum, gotbásum og gólfefnum á flestum búanna, en slíkar breytingar eru kostnaðarsamar og mun það taka tíma að breyta öllum búum þannig að þessi atriði standist kröfur,“ segir í fréttabréfi Matvælastofnunar.

Skýrslan í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert