PCC „fórnarlamb“ í máli sem fyrirtækið á ekki aðild að

Helgi Bjarnason

Stjórn PCC BakkiSilicon hf. harmar stöðuna sem upp er komin á Bakka og varðar stöðvun framkvæmda á vegum Landsnets sem valdið getur umtalsverðu fjárhagstjóni fyrir PCC BakkiSilicon verði ekki fundin lausn sem fyrst á þeirri stöðu sem komin er upp. Þetta kemur fram í tilkynningu frá PCC en þar segir jafnframt að fyrirtækið sé fórnarlamb í máli sem það á enga aðild að.

Fyrirtækið vísar þar til tveggja bráðabirgðaúrskurða útskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem stöðva framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 á meðan nefndin fjallar um kæru Landverndar vegna ákvarðana sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um að gefa út leyfi fyrir framkvæmdunum.

Frétt mbl.is: Úrskurðarnefnd stöðvar framkvæmdir

„PCC BakkiSilicon stendur nú skyndilega frammi fyrir mikilli óvissu vegna atburðarásar sem fyrirtækið á enga aðild að og haft getur áhrif á framkvæmdir þess sem hafa verið í undirbúningi undanfarna 15 mánuði,“ segir í tilkynningunni.

Samkvæmt tilkynningunni er áætlaður fjárfestingarkostnaður PCC í sílikonverksmiðjunni á Bakka um 300 milljónir bandaríkjadollara og hefur umtalsverðum hluta þess kostnaðar þegar verið varið til verkefnisins. Ítrekar fyrirtækið að miklir hagsmunir séu í húfi og að teflt sé í tvísýnu við núverandi aðstæður, fari svo að afhending á raforku til verksmiðjunnar tefjist frá því sem um hefur verið samið.

Þá segir í tilkynningunni að ekki sé rétt sem fram kemur í kæru Landverndar þar sem segir að fyrirhuguð orkuþörf PCC BakkiSilicon sé allt að 58MW. Rétt sé að orkuþörf tveggja ofna sé um 54MW miðað við 36 kt framleiðslu en miðað er við 66kt í umhverfismati og uppkasti af starfsleyfi sem krefjast mun 100 MW en ekki 58MW eins og segir í kæru Landverndar.

Blanda sér ekki í deilu málsaðila

„Eðli málsins samkvæmt mun PCC BakkiSilicon ekki blanda sér í deilu málsaðila enda þótt deilan varði PCC miklu í bráð og lengd. Ég vil þó benda á að þegar ákvörðun var tekin um að hætta við byggingu og rekstur álvers á Bakka skapaðist breið samstaða um það að í staðinn yrði lögð áhersla á uppbyggingu fleiri en smærri fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu á Bakka,“ segir Hafsteinn Viktorsson, framkvæmdastjóri hjá PCC BakkiSilicon hf. Í kjölfarið hafi PCC tekið ákvörðun um að taka þátt í þeirri atvinnuuppbyggingu ásamt fleiri aðilum og Hafsteinn vonar að sú uppbygging verði að veruleika.

Frétt mbl.is: Tafir heimatilbúinn vandi

„Það hefur því aldrei staðið til að þær framkvæmdir sem Landsneti hefur verið gert að stöðva beinist eingöngu að þörfum PCC. Þær hafa þvert á móti að markmiði að geta uppfyllt orkuþörf fleiri atvinnufyrirtækja sem vilja hefja rekstur á Bakka,“ segir Hafsteinn.

Sérkennilegt að stöðva framkvæmdir sem hafa tilskilin leyfi

Breytingar á náttúruverndarlögum tóku gildi 15. nóvember 2015 en fjórum mánuðum síðar var óskað eftir leyfum fyrir lagningu beggja raforkulínanna og veittu Skútustaðahreppur og Þingeyjarsveit leyfi fyrir því. Hófust þá framkvæmdir við undirbúning línulagnarinnar.

„Það er að okkar mati mjög sérkennilegt að hægt sé að fá framkvæmdir stöðvaðar sem hlotið hafa öll tilskilin leyfi og haft getur í för með sér það uppnám sem nú er orðið. Ef okkur hefði grunað að svona færi hefðum við væntanlega ekki byrjað verklegar framkvæmdir,“ segir Hafsteinn.

Að lokum vekur PCC athygli á grein 2.7 í fjárfestingarsamningi sem gerður var við íslensk stjórnvöld þar sem fram kemur að ríkisstjórn Íslands muni tryggja að „engar ráðstafanir verði gerðar sem kynnu að takmarka eða hafa önnur neikvæð áhrif á framkvæmd verkefnisins og starfsemi félagsins eða með öðrum hætti hindra að félagið og PCC SE njóti þeirra réttinda og ávinnings sem leiða af fjárfestingarsamningi þessum“.

Frétt mbl.is: Niðurstaða líkleg fyrir áramót

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert