Dýrkeyptur hraðakstur

mbl.is/Eggert

Rúmlega tuttugu ökumenn voru kærðir í vikunni fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.

Sá sem hraðast ók reyndist vera erlendur ferðamaður og mældist bifreið hans á 155 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann þarf að reiða fram 130 þúsund krónur í sekt fyrir hraðaksturinn.

Þá voru tveir ökumenn réttindalausir og allnokkrir staðnir að því að leggja bifreiðum sínum ólöglega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert