Grunur um umfangsmikil fjársvik

Maðurinn hefur komið margsinnis til Íslands með flugi sem hann …
Maðurinn hefur komið margsinnis til Íslands með flugi sem hann hefur pantað hjá Icelandair. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar umfangsmikið fjársvikamál sem upp kom laugardaginn 13. ágúst. Einn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins. Maðurinn er grunaður um að hafa greitt fyrir flugferðir með stolnum greiðslukortaupplýsingum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Hún segir málið snúast um farþega sem hafi ítrekað komið til landsins með flugvélum Icelandair. Hann sé grunaður um að hafa greitt fyrir ferðir sínar í gegnum vef  Icelandair með stolnum greiðslukortaupplýsingum.  Hann sé einnig grunaður um að hafa á ferðum sínum svikið út með sama hætti vörur sem seldar eru um borð í flugvélunum fyrir háar fjárhæðir. 

Maðurinn er talinn tengjast erlendum skipulögðum glæpasamtökum sem hafa það að markmiði að svíkja út dýran lúxusvarning um borð í flugvélunum og selja  á götum úti erlendis.

Rannsókn málsins miðar vel en hinn grunaði, sem hefur komið við sögu erlendra lögregluyfirvalda vegna samkonar brota, hefur gengist við brotum sínum að hluta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert