Lögfræðingur afgönsku mæðgnanna Maryam Raísi og Torpikey Farrash, sem hafa fengið neitun um hæli á Íslandi, hefur lagt fram ný gögn í málinu um versnandi heilsufarsástand Farrash.
Hún er sögð þjást af alvarlegri áfallastreituröskun og langvarandi kvíða.
Skorað hefur verið á kærunefnd útlendingamála að endurskoða ákvörðun um að senda mæðgurnar aftur til Svíþjóðar. Talið er nánast öruggt að þaðan verði þær sendar til Afganistans.
Til stóð að lögregla myndi birta mæðgunum lokaúrskurð um að þær fengju ekki hæli hér á landi núna í vikunni en þeim fundi var frestað.
Hildigunnur Sverrisdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir og Lilja Hjartardóttir, sem hafa barist fyrir því að mæðgurnar fái hæli hér á landi, áttu fund með forseta Íslands í gær. Þær afhentu honum bréf þar sem óskað var eftir því að málið verði tekið til nánari athugunar. Tvær þeirra eru alþjóðastjórnmálafræðingar með sérþekkingu á málefnum flóttamanna.
Að sögn Hildigunnar vöktu þær máls á tvískinnungi í framgöngu Íslands í flóttamannamálum og aðferðafræðinni sem er notuð, auk þess sem þær ræddu við hann um stöðu mæðgnanna.
Þær fóru einnig með bréf til innanríkisráðuneytisins þar sem formlega var tekið á móti því.
Tæplega 2.400 manns hafa tekið þátt í undirskriftasöfnun á netinu þar sem óskað er eftir því að mæðgurnar fái hæli á Íslandi.