Lilja og Karl leiða í Reykjavík

Lilja Alfreðsdóttir leiðir framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Lilja Alfreðsdóttir leiðir framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi suður. mbl.is/Eggert

Karl Garðarsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir í suður. Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir um lista flokksins í höfuðborginni á tvöföldu kjördæmaþingi.

Samkvæmt upplýsingum kjörstjórnar flokksins er nú þegar ljóst að í Reykjavíkurkjördæmi suður verði Lilja í fyrsta sæti, Ingvar Mar Jónsson í öðru sæti og Alex Björn Bülow Stefánsson í því þriðja.

Í Reykjavíkurkjördæmi norður leiðir Karl listann en Lárus Lárusson er í öðru sæti. Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður flokksins, gaf kost á sér í fyrsta sæti listans en Karl hafði betur í atkvæðagreiðslu.

Eins og áður segir stendur atkvæðagreiðsla enn yfir um framboðslistana í heild.

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert