Útimarkaður að frumkvæði íbúa

Stórir sem smáir klæddu sig upp í sitt fínasta púss …
Stórir sem smáir klæddu sig upp í sitt fínasta púss fyrir daginn. mbl.is/Golli

Árlegur útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals (ÍL) var haldinn í 14. skipti í dag á milli klukkan 11 og 16. Markaðurinn var þetta árið staðsettur á bílastæðum Menntaskólans við Sund.

Hildur Arna Gunnarsdóttir, einn skipuleggjenda, segir að þúsundir gesta hafi litið við á markaðinn, og allt hafi farið dásamlega vel fram. „Þessi markaður er alltaf einstakur. Það er samtakamáttur sem gerir hann að veruleika,“ segir hún. „Það var iðandi mannlíf, ótrúlega góð stemning og mikil gleði og ánægja í loftinu.“ 

Markaðurinn er eins konar „sprett-upp“-viðburður þar sem honum er fundinn nýr staður á hverju ári gagngert til þess að vekja athygli á áhugaverðum opnum svæðum í 104 og 105 Reykjavík. Viðburðurinn stækkar með hverju árinu og voru seljendur þetta árið ríflega 150. 

Á markaðnum má selja allt milli himins og jarðar.
Á markaðnum má selja allt milli himins og jarðar. mbl.is/Golli

„Útimarkaðurinn hefur ávallt verið haldinn að frumkvæði íbúa sem leggja mikið á sig til að búa til og viðhalda markaðsstemmningunni sem er einstök. Á markaðnum, sem einkennist af gleði, má selja allt milli himins og jarðar og öllum er heimil þátttaka. Ávallt er mikið fjör á markaðsdegi enda eru skemmtilegar uppákomur stór hluti af aðdráttarafli hans því mikið af skemmtilegu hæfileikafólki býr í Laugardal og nágrenni,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum markaðarins. 

Markmiðin með útimarkaði ÍL eru að skapa skemmtilegan hverfisbrag, að efla samskipti á jákvæðum nótum, opna augu íbúa fyrir áhugaverðum svæðum í nærumhverfinu og stuðla að vistvernd með því að leggja áherslu á hvers kyns endurnýtingu. Í anda vistverndar eru markaðsgestir hvattir til þess að sækja markaðinn gangandi, hjólandi eða með strætó.

„Óhætt er að segja að útimarkaðurinn auðgi mannlíf svo um munar en hann er einstakur og ógleymanlegur öllum þeim sem taka þátt í honum með einum eða öðrum hætti; seljendum, kaupendum, skemmtikröftum og mannlífsunnendum.“

Fjölmargir kíktu við á markaðnum í dag.
Fjölmargir kíktu við á markaðnum í dag. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert