Hafa þungar áhyggjur af Bakka

Bakki við Húsavík
Bakki við Húsavík Ljósmynd Gaukur Hjartarson

Stjórn stéttarfélagsins Framsýnar hefur þungar áhyggjur af þeirri stöðu sem komin er upp varðandi orkuflutning á Bakka í Norðþingi. Stjórnin er einnig ósátt við að einstakir þingmenn skuli gleðjast yfir því að þessi staða sé komin upp. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun stjórnarinnar síðan í morgun. 

Ályktun um framkvæmdir á Bakka við Húsavík

„Framsýn, stéttarfélag, tekur heilshugar undir með sveitarfélaginu Norðurþingi sem lýsir yfir þungum áhyggjum af  þeirri stöðu sem upp er komin varðandi framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1, en henni er ætlað að flytja orku til iðnaðarsvæðisins á Bakka. Öll hönnun svæðisins og uppbygging innviða hefur miðað að því að á næstu árum byggist þar upp iðnaðarsvæði með nokkrum fyrirtækjum sem nýta muni orku og línumannvirki svæðisins. Frá upphafi hefur verið litið á fyrri áfanga kísilvers PCC BakkiSilicon sem einungis fyrsta áfanga í þeirri uppbyggingu. Mjög miklir samfélagslegir og fjárhagslegir hagsmunir eru undir í því að niðurstaða fáist í málið á allra næstu dögum.

Þá telur Framsýn það ekki boðlegt og reyndar sorglegt að ákveðnir þingmenn skuli gleðjast sérstaklega yfir því að framkvæmdin á Bakka á vegum PCC skuli vera komin í uppnám eftir kæru Landverndar. Tugmilljarða framkvæmd er í hættu þrátt fyrir að framkvæmdaaðilar og sveitarfélögin á svæðinu hafi vandað mjög til verks allt frá upphafi í fullu samráði við hlutaðeigandi aðila,“ segir í ályktuninni sem send var til fjölmiðla.

Frétt mbl.is: Ekki æskilegt að hafa afskipti

Hafa ekki leiðrétt 588 krónu launin

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert